Skipulag strandsvæða, stjórnun á nýtingu auðlinda

Skipulag landssvæða er stefnumarkandi varðandi nýtingu auðlinda, nærtæk dæmi er umræða á ágætri ráðstefnu Ísafjarðarbæjar í lok janúar varðandi skipulag Hornstrandafriðlands og landsvæðis sunnan þess.  Þar var fjallað um samspil aðgengis og þolmarka svæðisins gangvart landeigendum, ferðaþjónustu og íbúum sveitarfélagsins.  Annað dæmi er fyrirhuguð kosning íbúa Hafnarfjarðar um deiliskipulag vegna stækkunar álvers.  Í grunninn er hér umræða um afnot af náttúruauðlindum, mat á verðmæti þeirra og hvernig ber að deila þeim verðmætum með núverandi og komandi kynslóðum.