Skipulag og skrifstofa

Skipulag Fjórðungssambands Vestfirðinga hefur breyst nokkuð frá fyrstu gerð enda þótt viðfangsefni séu að mestu svipuð og var í öndverðu. Sýslufélög standa ekki lengur að sambandinu, eins og var fyrstu tvo áratugina, heldur sveitarfélögin. 

Með lögum um tekjustofna sveitarfélaga árið 1972 batnaði fjárhagur sambandsins og var þá opnuð skrifstofa og framkvæmdastjóri ráðinn. Fyrsti framkvæmdastjóri sambandsins var Jóhann T. Bjarnason, sem gengdi starfinu af sérstökum dugnaði og samviskusemi um nærfellt tuttugu og þriggja ára skeið. 

Skrifstofa Fjórðungssambands Vestfirðinga er í Þróunarsetri Vestfjarða, Árnagötu 2-4, Ísafirði, í nánu sambýli við aðra þá sem þar starfa.  Skrifstofan er opin frá 8.30 til 16.00, sími skrifstofu er 450 3001 og farsími framkvæmdastjóra er 862 6092.

Framkvæmdastjóri Fjórðungssambandsins er Aðalsteinn Óskarsson