Fjórðungssamband Vestfirðinga

 

Fjórðungssamband Vestfirðinga er bandalag sveitarfélaga á Vestfjörðum, sameiginlegur vettvangur þeirra og málsvari. Hér er um frjáls samtök að ræða en ekki lögbundin.

Tilgangur Fjórðungssambandsins er að vinna að hagsmunum vestfirskra sveitarfélaga og alls Vestfirðingafjórðungs.

Fjórðungssamband Vestfirðinga fylgist náið með og beitir sér í málefnum sveitarfélaga, hvar sem þau kunna að vera til umfjöllunar, ekki síst á Alþingi, í ráðuneytum og ríkisstofnunum.