Sveitarfélög á Vestfjörðum eru tíu talsins. Þrjú við Ísafjarðardjúp, tvö á sunnanverðum Vestfjörðum, eitt á Reykhólum og fjögur á Ströndum. Mörg sveitarfélög á Vestfjörðum hafa verið sameinuð síðast liðin ár:
1953 Slétturhreppur fer í eyði en land hans fellt undir Ísafjarðarkaupstað með lögum frá 1995
1964 Grunnavíkurhreppur sameinast Snæfjallahreppi
1971 Eyrarhreppur sameinast Ísafjarðarkaupstað
1987 Geiradalshreppur, Gufudalshrepp Múlahreppur og Flayeyjarhreppur sameinast Reykhólahreppi
1987 Suðurfjarðarhreppur og Ketildalahreppur sameinast í Bíldudalshrepp
1987 Hrófbergshreppur sameinast í Hólmavíkurhrepp
1990 Auðkúluhreppur sameinast í Þingeyrarhrepp
1992 Fellshreppur og Óspakseyrarhreppur sameinast í Broddaneshrepp
1994 Barðastrandahreppur, Rauðasandshreppur, Patrekshreppur og Bíldudalshreppur sameinast í Vesturbyggð
1994 Nauteyrarhreppur sameinast í Hólmavíkurhrepp
1994 Snæfjallahreppur sameinast í Ísafjarðarkaupstað
1995 Súðavíkurhreppur, Ögurhreppur og Reykjafjarðarhreppur sameinast í Súðavíkurhrepp
1996 Ísafjarðarkaupstaður, Þingeyrarhreppur, Mýrahreppur, Mosvallahreppur, Flateyrarhreppur og Suðureyrarhreppur sameinast í Ísafjarðarbæ
2002 Kirkjubólshreppur og Hólmavíkurhreppur sameinast í Hólmavíkurhrepp
2006 Hólmavíkurhreppur og Broddaneshreppur sameinuð í Strandabyggð