Verkþættir og áætlun
Verkefninu í heild sinni má skipta í þrennt:
Forverkefni
Vinnu við forverkefni lauk í desember 2009. Þessi hluti var fjármagnaður er af Vaxtarsamningi Vestfjarða og mótframlagi samstarfsaðila. Undirbúningur svæðisskipulagsvinnu fyrir Vestfirði nýttist einnig í þessum hluta. Í forverkefninu fólst einkum skráning á núverandi nýtingu á strandsvæðum Vestfjarða og kynning á verkefninu fyrir stjórnvöldum, almenningi og öðrum hagsmunaaðilum. Niðurstöður þessa fyrsta áfanga eru og verða nýttar til að undirbyggja og útfæra annan og þriðja áfanga verkefnisins, þ.e. aðalverkefni og framhaldsverkefni.
Aðalverkefni
Annar áfangi áætlunarinnar miðar að því að gera hina eiginlegu stefnumörkun nýtingaráætlunarinnar. Fyrst verður gerð nýtingaráætlun fyrir Arnarfjörð og í framhaldinu verður gerð sambærileg áætlun fyrir alla Vestfirði, með sama hætti og í samræmi við þær niðurstöður sem fást úr áætlanagerð fyrir Arnarfjörð. Sérstök áhersla verður lögð á aðkomu hagsmunaaðila í vinnunni og samvinnu við opinbera aðila. Áætlað er að vinna við nýtingaráætlun Arnarfjarðar taki um 16 mánuði en að lokið verði við gerð nýtingaráætlunar fyrir alla Vestfirði á um tveimur árum.
Framhaldsverkefni
Í þriðja áfanga verkefnisins verður gerð greining á því hvernig nýtingaráætlunin fellur að núverandi stjórnsýslu og hvernig má hrinda henni í framkvæmd, þ.e. þannig að sveitarfélög komi að skipulagi á skilgreindum strandsvæðum. Skoðaðir verða möguleikar á gerð lögformlegs strandsvæðaskipulags og leiðbeiningagerðar fyrir leyfisveitendur, skipulagsyfirvöld og notendur svæðanna. Áætlað er að vinna við framhaldsverkefni geti tekið 1,5-2 ár.
Verkáætlun: Nýtingaráætlun fyrir strandsvæði Arnarfjarðar
|
Verkþættir
|
Undirverkþættir |
Tímabil |
||
|
1. Skrásetning á núverandi nýtingu |
Núverandi nýting, framsetning og úrvinnsla gagna frá forverkefni. |
Núvarandi stefna – samantekt
|
|
September 2010 |
|
2. Forsendur |
Náttúrufarslegar og félagslegar forsendur – samantekt |
Samantekt á fyrirliggjandi rannsóknum
|
|
September 2010- nóvember 2010 |
|
3.Aðferðafræði
|
Dæmi um strandsvæðaskipulag erlendis frá |
Tillaga að framsetningu nýtingaráætlunar
|
Nýtingarflokkar og afmörkun svæðis
|
Október 2010 – janúar 2011 |
|
4. Greining á hagsmunaárekstrum |
Greining út frá skráningu nýtingar |
Greining með hagsmunaaðilum |
|
Október 2010- mars 2011. |
|
5. Samvinna við hagsmunaaðila |
Verklag skilgreint
|
Kynning á verklagi
|
|
September 2010- nóvember 2010 |
|
6. Verkefnisstjórn |
Áætlanagerð og fundir
|
|
|
September 2010 desember 2011 |
|
7. Samvinna við stofnanir |
Samskipti, upplýsingaöflun og kynning |
|
|
September 2010- mars 2011 |
|
8. Stefnumörkun
|
Leiðarljós og markmið
|
Uppdrættir
|
Greinargerð
|
Mars 2011- september 2011 |
|
9. Umhverfismat áætlunarinnar |
Afmörkun og mat á valkostum |
Textaskrif
|
|
September 2011- nóvember 2011 |
|
10. Kynning á niðurstöðum og umsagnir |
Uppsetning á gagnagrunni / heimasíðu |
Efni miðlað til almennings
|
Samskipti
|
September 2010- desember 2011 |
|
11. Frágangur |
Greinargerð
|
Uppdrættir
|
Skýrsluskrif vegna umsókna |
Nóvember 2011- desember 2011 |





