Staða verkefnis

2011

Júlí-ágúst 2011 
Samantekt á fyrirliggjandi stefnumörkun: Aðalskipulag, stefnumörkun íslenskra stjórnvalda og alþjóðasáttmálar og samningar. Öflun grunngagna í samvinnu við stofnanir. Gerð uppdrátta með núverandi nýtingu. 

Júní 2011 
Áframhaldandi úrvinnsla í samræmi við niðurstöðu skipulagshóps frá 13.maí. Nákvæm skráning á núverandi nýtingu með öllum tiltækum gögnum. Aðferðafræði, framsetning og öflun grunngagna. Úrvinnsla aflagagna á vegum Hafrannsóknarstofnunar. Samvinna við stofnanir sem skipa bakhóp verkefnisins, þ.e. Orkustofnun, Umhverfisstofnun, Skipulagsstofnun og Hafrannasóknastofnun. 

Maí 2011 
Fundur skipulagshóps á Bíldudal 13 maí. Þar var m.a. farið yfir þær niðurstöður hópsins sem þegar liggja fyrir og rætt um aðkomu stofnana og gildi 
verkefnisins. Fundurinn samþykkti í megin atriðum innihald og framsetningu sem birt er í greiningu skipulagshóps og að áfram skuli unnið að frekari úrvinnslu gagna. Kynning á verkefninu á aðalfundi samtaka fiskeldisstöðva þann 13. maí 2011.  

Mars-apríl 2011 
Skipulagshópi sendar niðurstöður greiningar til skoðunar.  Úrvinnsla grunngagna hjá Hafrannsóknarstofnun.  Gerð áfangaskýrsla 
vegna styrkja til verkefnisins. Kynning á verkefninu á ráðstefnu Skelræktar á Akureyri þann 1. apríl. 

Janúar-febrúar 2011 
Úrvinnsla greiningar skipulagshóps.  Samvinna við stofnanir um öflun grunnupplýsinga.

 

2010

  • Desember: Gagnaöflun í samvinnu við stofnanir og úrvinnsla greiningar hagsmunaaðila.
  • Nóvember: Málþing á Bíldudal um Nýtingaráætlun fyrir strandsvæði Vestfjarða þann 14. nóvember. Sama dag var fyrsti fundur skipulagsóps. Í framhaldinu vinnur hver fulltrúi í skipulagshópi að greiningu sem afhent var á fyrsta fundin hópsins. Unnið verður að gagnaöflun í samvinnu við stofnanir.
  • Ágúst-október: Forsendur, aðferðafræði og samvinna við hagsmunaaðila og stofnanir.
  • Júlí: Ráðuneytin svara erindi Fjórðungssambandsins og samþykkja aðkomu sína að verkefninu, faglega og fjárhagslega.
  • Júní: 11. Júní var tekið við styrki úr Náttúruverndarsjóði Pálma Jónssonar í Iðnó.
  • Apríl: Vaxtarsamningur Vestfjarða samþykkti að styrkja verknefnið.
  • Mars: Ákveðið að gera nýtingaráætlun fyrir Strandsvæði Arnarfjarðar sem tilraunaverkefni áður en ráðist verði í áætlanagerð fyrir alla Vestfirði. Sótt um styrk til Vaxtarsamnings Vestfjarða til að vinna áfram að verkefninu. Fjórðungssamband Vestfjarða sendi umhverfisráðuneyti, Iðnaðarráðuneyti, Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti, samgöngu og sveitarstjórnarráðuneyti og dómsmála og mannréttindaráðuneyti beiðni um aðkomu þeirra að verkefninu.
  • Janúar-febrúar: Unnið að áframhaldandi fjármögnun og stuðningi við aðalverkefnið. Sótt um í styrktarsjóði og unnið að áætlanagerð, afmörkun og skilgreiningu á verkefni.

2009

  • Desember: Lokaskýrslu skilað til Vaxtarsamnings Vestfjarða.
  • Nóvember: Opnir fundir á Drangsnesi, Reykhólum, Patreksfirði og Ísafirði  19., 20. Og 25. 11. 2009. Þar var verkefnið kynnt almenningi og öðrum hagsmunaaðilum og núverandi nýting skrásett.
  • Október: Kynning og afmörkun verkefnis skilgreind. Kortlagning núverandi nýtingar.
  • September: Málþing Háskólaseturs um skipulag og stjórnun strandsvæða 3.-4. september. Þar var verkefnið m.a. kynnt en auk þess voru önnur erindi sem fjölluðu sérstaklega um skipulag og stjórnun strandsvæða við Vestfirði.
  • Sveitarfélög á Vestfjörðum óska eftir samstarfi við ríkisvaldið um skipulag strandsvæðis Vestfjarða. Það er mat Fjórðungsþings að Vestfirðir séu kjörið svæði til þess að þróa aðferðir og reglur í þessum mikilvæga málaflokki, auk þess sem þar má finna sértæka þekkingu og fjölbreyttar rannsóknir á þessu sviði.
  • Júlí-ágúst: Kynning og afmörkun verkefnis skilgreind.
  • Júní: Vaxtarsamningur Vestfjarða samþykkti að styrkja forverkefni. Verkefnisstjórn fer á fundi með umhverfisráðherra, jávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, iðnaðarráðherra og fulltrúum frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Þar var verknefið kynnt og óskað eftir stuðningi við það.
  • Maí: Teiknistofan, Fjórðungssambandið og Háskólasetur sækja um styrk til að vinna forverkefni.
  • Janúar-apríl: Fjórðungssamband Vestfjarða, Teiknistofan Eik og Háskólasetur Vestfjarða ræða um möguleika á samstarfi við gerð nýtingaráætlunar fyrir strandsvæði Vestfjarða.

2007-2008

  • Undirbúningur að gerð svæðisskipulags. Ákveðið var í október 2008 að setja undirbúning svæðisskipulags í bið á meðan sveitarfélög klári aðalskipulagsáætlanir sínar. Á sama tíma lýstu sveitarfélögin vilja sínum til að vinna sérstaklega að skipulagi strandsvæða á Vestfjörðum.

2006

  • Fjórðungsþing Vestfirðinga árið 2006 fól með ályktun sinni stjórn sambandsins að kalla eftir tilnefningu sveitarstjórna á Vestfjörðum í starfshóp sem vinni að undirbúningi svæðisskipulags fyrir Vestfirði. „Svæðisskipulagið verði framtíðarsýn fyrir Vestfirði sem byggi á samspili nýtingar náttúru, þróunar efnahags og samfélags á grunni sjálfbærrar þróunar.“ Í greinargerð með ályktuninni er lagt til að horft verði til skipulags á nýtingu strandsvæða við Vestfirði.