Skipulagssvæðið
Arnarfjörður hefur verið valinn sem tilraunasvæði í þessu verkefni, Nýtingaráætlun fyrir strandsvæði Vestfjarða. Svæðið markast af 115 m línu frá stórstraumsfjöruborði og 1 sjómílu útfyrir grunnlínu landhelginnar. Innri mörkin miðast við skipulags- og byggingarlög og ytri mörkin við vatnatilskipun Evrópusambandsins. Þannig mun nýtingaráætlunin koma í beinu framhaldi af aðalskipulagi sveitarfélaganna.
Afmörkun skipulagssvæðis. Rauða línan er dregin 1 sjómílu fyrir utan grunnlínu landhelginnar. Innri mörk miðast við línu sem dregin er 115 m frá stórstraumsfjöruborði (Umhverfisráðuneytið 2010).
Arnarfjörður var valinn sem tilraunasvæði því til eru ítarlegri rannsóknargögn um fjörðinn en almenn um aðra firði. Þar er einnig fjölbreytt nýting á sjó hafsbotni og á landi og áhugi á nýtingu fer vaxandi. Þörfin fyrir skipulagi í Arnarfirði er því augljós.
Þegar nýtingaráætlun fyrir Arnarfjörð liggur fyrir verður ráðist í gerð nýtingaráætlunar fyrir alla Vestfirði. Þessi vinna mun svo gagnast við heildarendurskoðun og breytingar á löggjöf á þessu sviði, m.a. við gildistöku vatnatilskipunar Evrópusambandsins. Þá verður Vestfjörðum skipt í 3 svæði: norðursvæði, vestursvæði og austursvæði og nýtingaráætlun unnin fyrir hvert þeirra. Öll vinna verður þó samræmd.





