Sameiginleg niðurstaða

Fulltrúar í skipulagshópi eru í öllum tilvikum fulltrúar fyrir ákveðinn hóp og ber þeim að standa vörð um sjónarmið og hagsmuni þeirra. Fulltrúarnir þurfa því að vera í góðu sambandi við skjólstæðinga sína og virkja umræðu innan félaganna. Stefnan sem mörkuð verður ræðst m.a. af þeim forsendum sem fyrir hendi eru en einnig af þeim gildum sem þátttakendur í verkefninu munu setja í öndvegi. Mismunandi sjónarmið og viðhorf kunna að vera til staðar hjá þátttakendum en áhersla er lögð á að hópurinn komist að sameiginlegri heildar-niðurstöðu. Stefnunni er ætlað að verða svæðinu til hagsbóta til lengri tíma litið.