Málþing á Bíldudal
Málþing um nýtingu strandsvæðis Arnarfjarðar var haldið í félagsheimilinu Baldurshaga, Bíldudal, sunnudaginn 14. nóvember 2010. Í framhaldi málþingsins var haldinn fyrsti fundur starfshóps sem mun vinna að verkefni um gerð nýtingaráætlunar fyrir strandsvæði Arnafjarðar.
Verkefnið, nýtingaráætlun strandsvæðis Arnarfjarðar, hefur verið í undirbúningi um nokkurt skeið. Verkefnið byggir á samþykkt Fjórðungsþings Vestfirðinga frá árinu 2008 og 2009 en einnig hafa stjórnvöld lýst áhuga á framkvæmd og hagnýtingu niðurstaðna til mótunar stefnu um nýtingu strandsvæðis almennt. Hér um að ræða fyrsta verkefni sinnar tegundar sem unnið er á Íslandi. Verkefnið er hluti af stærra verkefni sem miðar að því að gera nýtingaráætlun fyrir alla Vestfirði en vinna við það hófst árið 2009 með skráningu á núverandi nýtingu strandsvæðis við Vestfirði. Niðurstöður tilraunaverkefnisins munu nýtast í áframhaldandi vinnu við nýtingaráætlun fyrir Vestfirði. Mótun og framkvæmd verksins, hefur verið unnin í samstarfi Fjórðungssambands Vestfirðinga, Háskólaseturs Vestfjarða og Teiknistofunnar Eikar.
Meginmarkmið verkefnisins er að gera samþætta nýtingaráætlun fyrir strandsvæði Arnarfjarðar og samræma stjórnun og nýtingu þessa svæðis í samvinnu við hagsmunaaðila. Verkefninu er ætlað að bæta nýtingarmöguleika strandsvæðis í Arnarfirði og stuðla að sjálfbærri nýtingu til hagsbóta fyrir samfélag, efnahagslíf og umhverfi. Jafnframt er ætlunin að stuðla að nýsköpun á sviði umhverfis- og auðlindastjórnunar á strandsvæðum. Unnið verður eftir ákveðnu verklagi sem m.a. felur í sér nána samvinnu við íbúa og hagsmunaaðila. Settur verður á fót hópur hagsmunaaðila og fulltrúa sveitarstjórna (Vesturbyggðar, Tálknafjarðar og Ísafjarðarbæjar) og verður hlutverk hans að vinna áætlunina í samvinnu við ráðgjafa.
Framkvæmd verkefnisins nýtur fjárstuðnings Umhverfisráðuneytis, Iðnaðarráðuneytis, Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytis og Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis, Vaxtarsamnings Vestfjarða og Náttúruverndarsjóðs Pálma Jónssonar, stofnenda Hagkaups.
Hér fyrir neðan má nálgast erindin sem flutt voru á málþinginu:
Aðalsteinn Óskarsson, Fjórðungssambandi Vestfirðinga - Nýtingaráætlun: Aðdragandi og sjónarmið
Gunnar Páll Eydal, Teiknistofunni Eik - Nýtingaráætlun Arnarfjarðar: Gögn og aðferðir
Stefán Thors, skipulagsstjóri, Skipulagsstofnun - Skipulag á landi og í sjó
Hjalti Karlsson, forstöðumaður Hafrannsóknastofnun á Ísafirði - Rannsóknir á lífríki sjávar
Lárus Ólafsson, yfirlögfræðingur Orkustofnunar - Leyfisveitingar og auðlindir á hafsbotni
Sigríður Ólafsdóttir, doktorsnemi - Nýting og skipulag strandsvæða





