Kynning og afgreiðsla
Vinnuferlið í verkefninu á að vera opið og gagnsætt en þannig verður auðveldara að virkja almenning og hagsmunaaðila til þátttöku í verkefninu en slíkt er forsenda fyrir góðri niðurstöðu. Settur verður á fót skipulagshópur sem mun fjalla um nýtingu á því svæði sem er til umræðu. Í hópnum verða fulltrúar allra þeirra hópa sem eiga mikilla hagsmuna að gæta varðandi nýtingu svæðisins ásamt fulltrúum nærliggjandi sveitarfélaga. Hlutverk hópsins verður að gera tillögu að nýtingaráætlun fyrir svæðið.
Sett verður upp heimasíða um verkefnið á vegum Fjórðungssambandsins. Á henni verður almenn kynning á verkefninu en einnig verður gögnum miðlað til þátttakenda þess. Fulltrúum skipulagshóps íbúa og hagsmunaaðila er ætlað að hafa samskipti við sína félagsmenn eða skjólstæðinga og vinna þannig að þeirra hagsmunamálum.
Fundir til kynningar verða haldnir eftir því sem þurfa þykir og hægt verður að senda athugasemdir til verkefnisstjórnar í tölvupósti eða koma þeim með öðrum hætti til skila.
Áður en nýtingaráætlunin verður afgreidd formlega verður hún send til umsagnar stofnana og í framhaldinu auglýst í fjölmiðlum og gefst þá tækifæri til að senda inn ábendingar eða athugasemdir við hana. Sveitarstjórnir nærliggjandi sveitarfélaga, í þessu tilviki Vesturbyggðar, Tálknafjarðar og Ísafjarðarbæjar, munu fjalla um áætlunina og afgreiða hana með svipuðum hætti og aðrar skipulagsáætlanir.





