Hlutverk skipulagshóps

Hlutverk skipulagshópsins er að gera nýtingaráætlun fyrir Arnarfjörð. Þar verður sett fram farmtíðarsýn fyrir nýtingu á strandsvæðinu líkt og gert er í skipulagi á landi þar sem gert er ráð fyrir ákveðinni nýtingu á skilgreindum svæðum.  Auk þess verður safnað saman upplýsingum um náttúrufar og núverandi nýtingu á strandsvæðum. Ekki verður fjallað um eignarhald eða ráðstöfun og úthlutun auðlinda. Sveitarstjórnir hlutaðeigandi sveitarstjórna, í þessu tilviki Vesturbyggð, Tálknafjarðarhreppur og Ísafjarðarbær,  munu fjalla um og afgreiða nýtingaráætlunina með svipuðum hætti og gert er fyrir skipulagsáætlanir.

Hópurinn mun skila niðurstöðum sínum í tvennu lagi: 

  • Uppdrættir sem sýnir fyrirhugaða nýtingu svæðisins.
  • Greinargerð sem fjallar nánar um nýtingu svæðisins og stefnumörkun.

Skipulagsráðgjafar munu sjá um tæknilega útfærslu á uppdrætti og uppsetningu greinargerðar. Til stuðnings verkefnastjórnar er bakhópur fagstofnana en hlutverk hans er að veita aðgang að gögnum og sérfræðiþekkingu sem nýst getur í verkefninu.