Gildi nýtingaráætlunarinnar

Verkefnið er unnið að frumkvæði sveitarfélaga á Vestfjörðum, Teiknistofunnar Eikar og Háskólaseturs Vestfjarða. Nýtingaráætlunin hefur því ekki lagalegt gildi með sama hætti og hefðbundnar skipulagsáætlanir. Hér er hins vegar um að ræða stefnuyfirlýsingu sveitarfélaganna varðandi nýtingu strandsvæða, þ.e. svæðisins sem markast af 115 m línu frá stórstraumsfjöruborði og 1 sjómílu útfyrir grunnlínu landhelginnar. Það er von sveitarfélaganna sem standa að verkefninu að opinberir aðilar taki mið af þessari stefnu við ákvarðanatöku um nýtingu svæðanna.

 

Í nýtingaráætluninni verður sett fram farmtíðarsýn varðandi nýtingu á strandsvæðinu. Verður þetta með svipuðum hætti og gert er í skipulagi á landi, þ.e. aðalskipulagi og svæðisskipulagi, þar sem nýting svæða er skilgreind landfræðilega. Auk þess verður safnað saman upplýsingum um náttúrufar og núverandi nýtingu á strandsvæðum. Ekki verður fjallað um eignarhald eða ráðstöfun og úthlutun auðlinda í verkefninu.

 

Stefnan sem mörkuð verður ræðst m.a. af þeim forsendum sem fyrir hendi eru en einnig af þeim gildum sem þátttakendur í verkefninu munu setja í öndvegi. Mismunandi sjónarmið og viðhorf kunna að vera til staðar hjá þátttakendum en áhersla er lögð á að hópurinn komist að sameiginlegri heildar-niðurstöðu. Stefnunni er ætlað að verða svæðinu til hagsbóta til lengri tíma litið, þ.e. byggja á hugmyndfræði sjálfbærrar þróunar.