Áætlun

Áætlað er að vinnu við verkefnið ljúki í desember 2011. Gert er ráð fyrir virkri þátttöku fulltrúa hagsmunaaðila í verkefninu á tímabilinu október 2010-október 2011. Erfitt er að segja til um fjölda funda skipulagshópsins en það ræðst m.a. af samsetningu, áhuga og skoðunum fulltrúanna. Gera má ráð fyrir að fjöldi funda verði á bilinu 5-10. Þeir verða tímasettir jafn óðum.