Fjórðungssamband Vestfirðinga stóð fyrir málþingi um hugmyndir um stóriðnað á Vestfjörðum dagana 23. og 24. febrúar 2008. Sama dagskrá var báða dagana, en það var haldið á Bíldudal fyrri daginn og á Ísafirði þann seinni.
Málþinginu var skipt upp í þrjá hluta; Umhverfismál, ný atvinnutækifæri og samfélagsmál. Fyrirlestrar á málþinginu voru því mjög fjölbreyttir en þá má nálgast með því að smella á nafn hvers fyrirlesturs hér fyrir neðan. Hljóðupptaka af málþinginu á Ísafirði er nú komin inn hér fyrir neðan.
Umhverfismál
Dóra Hlín Gísladóttir, efnaverkfræðingur
- Hvað eru gróðurhúsalofttegundir? (hljóð)
Pétur Reimarsson, forstöðumaður stefnumótunar- og samskiptasviðs Samtaka Atvinnulífsins
- Atvinnulíf og umhverfi (hljóð)
Árni Finnsson, Náttúruverndarsamtök Íslands
- Loftlagsbreytingar og skuldbindingar Íslands (hljóð)
Bergur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Landverndar
- Olíuhreinsistöð - Umhverfisálag og spurningar sem vakna (hljóð)
Umræður (hljóð)
Ný atvinnutækifæri
Ólafur Egilsson, stjórnarformaður Íslensks Háttækniiðnaðar og Hafsteinn Helgason, verkfræðingur
- Olíuhreinsistöð - Staðreyndir (hljóð1/hljóð2)
Ragnar Baldursson, sendiráðunautur á Auðlinda- og umhverfisskrifstofu Utanríkisráðuneytisins
- Sjálfbær þróun í þágu norðursins - Tækifæri tengd opnun Norður-Íshafsins (hljóð)
Kristín Erla Einarsdóttir, staðgengill deildarstjóra kerfisþróunar hjá Landsneti
- Flutningskerfi raforku á Vestfjörðum (hljóð)
Umræður (hljóð)
Samfélagsmál
Jón Þorvaldur Heiðarsson, sérfræðingur hjá Rannsókna- og þróunarmiðstöð Háskólans á Akureyri
- Vinnumarkaður og samgöngur (hljóð)
Karl Benediktsson, landfræðingur
- Frá þorski til þekkingar? (hljóð)
Smári Geirsson, bæjarfulltrúi í Fjarðabyggð
- Reynslan að austan (hljóð)
Kristinn Hermannsson, hagfræðingur
- Framtíð byggða á Vestfjörðum (hljóð)
Umræður (hljóð)