Fjórðungssamband Vestfirðinga

Nýjast á vefnum

Dagskrá 55. Fjórðungsþings

-------------------------------




Fjórðungssamband Vestfirðinga er bandalag sveitarfélaga á Vestfjörðum, sameiginlegur vettvangur þeirra og málsvari. Hér er um frjáls samtök að ræða en ekki lögbundin. Tilgangur Fjórðungssambandsins er að vinna að hagsmunum vestfirskra sveitarfélaga og alls Vestfirðingafjórðungs. Fjórðungssamband Vestfirðinga fylgist náið með og beitir sér í málefnum sveitarfélaga, hvar sem þau kunna að vera til umfjöllunar, ekki síst á Alþingi, í ráðuneytum og ríkisstofnunum.



01. september 2010 | 20:18

Efni 55. Fjórðungsþings er nú að finna á vef sambandsins undir 55. Fjórðungsþing.

31. ágúst 2010 | 21:53

Dagskrá 55. Fjórðungsþings Vestfirðinga liggur nú fyrir, dagskrána ásamt öðru efni þingsins má nú finna á vef sambandsins.

02. júlí 2010 | 17:58

Skrifstofa Fjórðungssambands Vestfirðinga verður lokuð frá 5. júlí til og með 9. ágúst. Áríðandi málum er hægt að beina til formanns stjórnar Önnu Guðrúnar Edvardsdóttur í síma 864 0332 ef ekki næst á Önnu Guðrúnu skal erindinu beint til framkvæmdastjóra í síma 862 6092 og í tölvupósti skrifstofa@fjordungssamband.is. Einnig er mögulegt að beina málum til afgreiðslu skrifstofu sambandsins að Árnagötu 2-4, Ísafirði eða í síma 450 3000 sem tekur við skilaboðum og veitir upplýsingar.

02. júlí 2010 | 16:07

Drög að dagskrá 55. Fjórðungsþings Vestfirðinga liggur nú frammi til kynningar, dagskrána má finna hér. Stjórn Fjórðungssambands Vestfirðinga mun koma saman þann 25. ágúst n.k. til að vinna að undirbúningi þingsins.

11. júní 2010 | 10:44

Fundargerð stjórnarfundar 9. júní 2010 er nú komin á vef sambandsins.

28. maí 2010 | 13:42

Iðnaðarráðherra hefur lagt fram á Alþingi þingsályktunartillögu um Byggðaáætlun 2010-2013, Fjórðungssamband Vestfirðinga hefur skilað iðnðarnefnd umsögn um efni hennar. Í umsögninni kemur fram gagnrýni á hversu þröngt svið verkefni og markmið Byggðaáætlunar eru sett, ekki er upplýst um fjárhagsramma áætlunarinnar, lítið er vikið að hlutverki landshlutasamtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunarfélaga. Jákvætt er talið hve víða er vikið að uppbyggingu menntunar, rannsóknar og þróunar og bent á uppbyggingu á Vestfjörðum í því sambandi, en um leið bent á að tryggja verði þá uppbyggingu í sessi. Fjórðungssamband Vestfirðinga bendir að lokum á nokkrar tillögur sem taka eigi til umfjöllunar innan Byggðaáætlunar þ.e. skattalegar ívilnair,

Næsta síða