Fjórðungssamband Vestfirðinga

Nýjast á vefnum

Dagskrá 55. Fjórðungsþings

-------------------------------




Fjórðungssamband Vestfirðinga er bandalag sveitarfélaga á Vestfjörðum, sameiginlegur vettvangur þeirra og málsvari. Hér er um frjáls samtök að ræða en ekki lögbundin. Tilgangur Fjórðungssambandsins er að vinna að hagsmunum vestfirskra sveitarfélaga og alls Vestfirðingafjórðungs. Fjórðungssamband Vestfirðinga fylgist náið með og beitir sér í málefnum sveitarfélaga, hvar sem þau kunna að vera til umfjöllunar, ekki síst á Alþingi, í ráðuneytum og ríkisstofnunum.



02. júlí 2010 | 17:58

Sumarlokun skrifstofu Fjórðungssambands Vestfirðinga
Skrifstofa Fjórðungssambands Vestfirðinga verður lokuð frá 5. júlí til og með 9. ágúst. Áríðandi málum er hægt að beina til formanns stjórnar Önnu Guðrúnar Edvardsdóttur í síma 864 0332 ef ekki næst á Önnu Guðrúnu skal erindinu beint til framkvæmdastjóra í síma 862 6092 og í tölvupósti skrifstofa@fjordungssamband.is.  Einnig er mögulegt að beina málum til afgreiðslu skrifstofu sambandsins að Árnagötu 2-4, Ísafirði eða í síma 450 3000 sem tekur við skilaboðum og veitir upplýsingar.
Til baka