Fjórðungssamband Vestfirðinga

Nýjast á vefnum

Dagskrá 55. Fjórðungsþings

-------------------------------




Fjórðungssamband Vestfirðinga er bandalag sveitarfélaga á Vestfjörðum, sameiginlegur vettvangur þeirra og málsvari. Hér er um frjáls samtök að ræða en ekki lögbundin. Tilgangur Fjórðungssambandsins er að vinna að hagsmunum vestfirskra sveitarfélaga og alls Vestfirðingafjórðungs. Fjórðungssamband Vestfirðinga fylgist náið með og beitir sér í málefnum sveitarfélaga, hvar sem þau kunna að vera til umfjöllunar, ekki síst á Alþingi, í ráðuneytum og ríkisstofnunum.



28. maí 2010 | 13:42

Byggðaáætlun 2010-2013, umsögn Fjórðungssambands Vestfirðinga
Iðnaðarráðherra hefur lagt fram á Alþingi þingsályktunartillögu um Byggðaáætlun 2010-2013, Fjórðungssamband Vestfirðinga hefur skilað iðnðarnefnd umsögn um efni hennar. Í umsögninni kemur fram gagnrýni á hversu þröngt svið verkefni og markmið Byggðaáætlunar eru sett, ekki er upplýst um fjárhagsramma áætlunarinnar, lítið er vikið að hlutverki landshlutasamtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunarfélaga. Jákvætt er talið hve víða er vikið að uppbyggingu menntunar, rannsóknar og þróunar og bent á uppbyggingu á Vestfjörðum í því sambandi, en um leið bent á að tryggja verði þá uppbyggingu í sessi.  Fjórðungssamband Vestfirðinga bendir að lokum á nokkrar tillögur sem taka eigi til umfjöllunar innan Byggðaáætlunar þ.e. skattalegar ívilnair, ívlinanir á námslánum ungs fólks, almenningssamgöngur, jöfnun flutningskostnaðar og stefnu í fjölgun opinberra starfa utan höfuðborgarsvæðis.  Umsögnina má finna í heild sinni hér.
Til baka