Fjórðungssamband Vestfirðinga

Nýjast á vefnum

Dagskrá 55. Fjórðungsþings

-------------------------------




Fjórðungssamband Vestfirðinga er bandalag sveitarfélaga á Vestfjörðum, sameiginlegur vettvangur þeirra og málsvari. Hér er um frjáls samtök að ræða en ekki lögbundin. Tilgangur Fjórðungssambandsins er að vinna að hagsmunum vestfirskra sveitarfélaga og alls Vestfirðingafjórðungs. Fjórðungssamband Vestfirðinga fylgist náið með og beitir sér í málefnum sveitarfélaga, hvar sem þau kunna að vera til umfjöllunar, ekki síst á Alþingi, í ráðuneytum og ríkisstofnunum.



26. maí 2010 | 15:34

Starf verkefnisstjóra um tilflutning á málefnum fatlaðra
Fjórðungssamband Vestfirðinga auglýsir nú tímabundið starf verkefnisstjóra til að vinna að undirbúningi á tilflutningi á málefnum fatlaðra á Vestfjörðum frá ríki til sveitarfélaga. Auglýsing þess efnis birtist í fjölmiðlum næstu daga en auglýsinguna er einnig að finna hér.
Til baka