Fjórðungssamband Vestfirðinga

Nýjast á vefnum

Dagskrá 55. Fjórðungsþings

-------------------------------




Fjórðungssamband Vestfirðinga er bandalag sveitarfélaga á Vestfjörðum, sameiginlegur vettvangur þeirra og málsvari. Hér er um frjáls samtök að ræða en ekki lögbundin. Tilgangur Fjórðungssambandsins er að vinna að hagsmunum vestfirskra sveitarfélaga og alls Vestfirðingafjórðungs. Fjórðungssamband Vestfirðinga fylgist náið með og beitir sér í málefnum sveitarfélaga, hvar sem þau kunna að vera til umfjöllunar, ekki síst á Alþingi, í ráðuneytum og ríkisstofnunum.



26. maí 2010 | 15:29

Umsagnir um frumvarp til skipulagslaga og mannvirkjalög
Á Alþingi eru nú til umfjöllunar frumvarp til laga um breytingar á skipulagslögum og mannvirkjalögum. Fjórðungssamband Vestfirðinga hefur sent umhverfisnefnd Alþingis umsagnir vegna framangreindra frumvarpa. Umsögn um skipulagslög má finna hér og um mannvirkjalög hér.  Samband íslenskra sveitarfélaga hefur einnig skilað inn umsögn, sem finna má á vefnum www.samband.is
Þetta er í þriðja sinn sem frumvarp til breytinga á framangreindum lögum er sett fram á Alþingi á síðustu fjórðum árum. Sveitarfélögin og samband íslenskra sveitarfélaga hafa gert verulegar athugasemdir við innihald þeirra. Nú þegar málið er lagt fram í þriðja sinn hefur margt verið fært til betri vegar og um margt ásættanlegt. Meginathugasemd Fjórðungssambands Vestfirðinga snýr að þeirri stefnu ríkisins að takmarka mjög aðkomu sveitarfélaga að þróun mála strandsvæðisins utan lögsögu þeirra. Það er enn og aftur ítrekuð sú skoðun vestfirskra sveitarfélaga að þau eigi að koma að þróun þessa svæðis og hafa kynnt verkefni í þessum efnum. Nýtingaráætlun strandsvæðis við Vestfirði.
Til baka