Fjórðungssamband Vestfirðinga

Nýjast á vefnum

Dagskrá 55. Fjórðungsþings

-------------------------------




Fjórðungssamband Vestfirðinga er bandalag sveitarfélaga á Vestfjörðum, sameiginlegur vettvangur þeirra og málsvari. Hér er um frjáls samtök að ræða en ekki lögbundin. Tilgangur Fjórðungssambandsins er að vinna að hagsmunum vestfirskra sveitarfélaga og alls Vestfirðingafjórðungs. Fjórðungssamband Vestfirðinga fylgist náið með og beitir sér í málefnum sveitarfélaga, hvar sem þau kunna að vera til umfjöllunar, ekki síst á Alþingi, í ráðuneytum og ríkisstofnunum.



26. maí 2010 | 15:34

Fjórðungssamband Vestfirðinga auglýsir nú tímabundið starf verkefnisstjóra til að vinna að undirbúningi á tilflutningi á málefnum fatlaðra á Vestfjörðum frá ríki til sveitarfélaga. Auglýsing þess efnis birtist í fjölmiðlum næstu daga en auglýsinguna er einnig að finna hér

26. maí 2010 | 15:29

Á Alþingi eru nú til umfjöllunar frumvarp til laga um breytingar á skipulagslögum og mannvirkjalögum. Fjórðungssamband Vestfirðinga hefur sent umhverfisnefnd Alþingis umsagnir vegna framangreindra frumvarpa. Umsögn um skipulagslög má finna hér og um mannvirkjalög hér . Samband íslenskra sveitarfélaga hefur einnig skilað inn umsögn, sem finna má á vefnum www.samband.is Þetta er í þriðja sinn sem frumvarp til breytinga á framangreindum lögum er sett fram á Alþingi á síðustu fjórðum árum. Sveitarfélögin og samband íslenskra sveitarfélaga hafa gert verulegar athugasemdir við innihald þeirra. Nú þegar málið er lagt fram í þriðja sinn hefur margt verið fært til betri vegar og

20. maí 2010 | 11:51

Fulltrúar úr stjórn og samgöngunefnd Fjórðungssambands Vestfirðinga eiga fund með samgöngunefnd Alþingis í dag 20. maí. Fundurinn verður haldinn í Reykjavík og með aðstoð síma. Á fundinum verður fylgt eftir áskorun samgöngunefndar Fjórðungssambands Vestfirðinga og umsögn sambandsins varðandi þingsályktunartillögu um samgönguáætlun 2009-2012 sem nú er til umfjöllunar á Alþingi. Áskorun samgöngunefndar Fjórðungssambands Vestfirðinga má finna hér og umsögn sambandsins hér

19. maí 2010 | 08:43

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur lagt fram á Alþingi frumvarp til laga um skeldýrarækt. Fjórðungssamband Vestfirðinga gerir alvarlegar athugasemdir við efni frumvarpsins þar sem nær algjörlega er horft framhjá aðkomu sveitarfélaga að skipulagi þessa nýja málaflokks. Fjórðungssamband Vestfirðinga leggur áherslu á aðkomu sveitarfélaga á skipulag starfsemi sem fer fram innan strandsvæðis þeirra, á sama hátt og þeim er falið skipulagsvald á landi, í annan stað að horft sé fram til að stækka þá lögsögu. Tillögur frumvarpsins er að ráðherra fari með það vald að geta sagt fyrir um ræktunarsvæði við landið án þess að sveitarstjórnir hafi nokkuð um það að segja. Fjórðungssambandið

07. maí 2010 | 16:45

Aðalfundur Atvinnuþróunarfélags Vestfjarða verður haldinn í fundarsal Þróunarseturs Vestfjarða, Ísafirði, þriðjudaginn 11. maí og hefst kl 13.00.

07. maí 2010 | 16:43

Samgönguráðherra og Vegagerðin hafa orðið við beiðni Reykhólahrepps, Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar að mæta til opins fundar í Félagsheimilinu á Patreksfirði til að kynna lögfræðiálit, um áhrif hæstarréttardóms frá í nóvember 2009 um leiðarval Vestfjarðarvegar 60 um Gufudalssveit í Reykhólahreppi og áframhald framkvæmda. Fundurinn hefst kl 20.00 og er eins og áður segir öllum opinn. Væntir Fjórðungssambandið að tækifæri gefist einnig til að ræða forsendur nýrrar samgönguáætlunar við ráðherra samgöngumála. Fjórðungssamband Vestfirðinga hvetur alla sem hafa tök á að mæta til þessa fundar.

Fyrri síða
Næsta síða